Hagsmunaskráning - Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

1. Störf sem sinnt er samhliða starfi í þágu Kópavogsbæjar

Ekki skal skrá upphæðir launagreiðslna en skrá skal upplýsingar um launað vinnuframlag, starfsemi og stjórnarsetu sem hér segir:

1.1 Skrá skal öll launuð störf, verkefni eða starfsemi ef heildargreiðsla á almanaksári er kr. 250.000 eða hærri. Skrá starfsheiti, nafn vinnuveitanda eða verkkaupa eða tilefni greiðslu eftir því sem við á.

Stundakennari
Háskólinn í Reykjavík

1.2 Skrá skal upplýsingar um stjórnarsetu og önnur trúnaðarstörf fyrir hagsmunasamtök, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félög, önnur en stjórnmálaflokka, óháð því hvort þessi störf eru launuð.

 Á ekki við

2. Fjárhagslegur stuðningur

Í 6. grein siðareglna kjörinna fulltrúa hjá Kópavogbæ kemur fram:


Óheimilt er að þiggja gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi frá viðskiptamönnum eða þeim sem leita eftir þjónustu Kópavogsbæjar, ef líta má á það sem endurgreiðslu fyrir greiða eða sérstaka þjónustu


2.1 Kjörnir fulltrúar mega þó þiggja gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi vegna starfa sinna, þar sem framangreindir hagsmunir eru ekki fyrir hendi en skulu þá birta upplýsingar um það í hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa, fari verðmæti gjafar yfir kr. 10.000.-

 Á ekki við

2.2. Fæ reglulega boðsmiða að gjöf

 Boðsmiða í leikhús
 Boðsmiða á íþróttaviðburði
 Annað

Boðsmiðar í Salinn á viðburði styrkta af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar

2.3 Eftirgjöf eftirstöðvar skuldar og ívilnandi breytingar á skilmálum samnings við lánadrottinn síðastliðin fjögur ár. Skrá skal lánadrottinn og eðli samnings.

 Á ekki við

3. Eignir

Skrá skal eignir sem hér segir:


3.1 Fasteign innan sveitarfélagsins, en undanþegnar eru fasteignir sem ætlaðar eru til eigin nota viðkomandi fulltrúa og fjölskyldu hans, sem er a.m.k. að þriðjungi í eigu kjörins fulltrúa, eða félags sem hann á að þriðjungi eða meira.

íbúð 02-0102
Furugrund 28

3.2 Heiti félags, fjármála- eða sjálfseignarstofnunar í atvinnurekstri, sem kjörinn fulltrúi á a.m.k. fjórðungs hlut í.

 Á ekki við

4. Samkomulag við fyrrverandi eða verðandi vinnuveitanda


4.1 Samkomulag við fyrrverandi vinnuveitanda sem er fjárhagslegs eðlis, þar á meðal samkomulag um orlof, launalaust leyfi, áframhaldandi launagreiðslur eða fríðindi, lífeyrisréttindi og ámóta meðan setið er í bæjarstjórn. Skrá skal gerð samkomulags og nafn vinnuveitanda.

 Á ekki við

4.2 Samkomulag við framtíðar vinnuveitanda um ráðningu, óháð því að ráðningin taki fyrst gildi eftir að fulltrúi hverfur úr bæjarstjórn. Skrá skal gerð samkomulags og nafn vinnuveitanda.

 Á ekki við